Blúbb
07.02.2006 08:43:47 / elingunn

Skólahjól

Jæjajá, ætli það sé ekki kominn tími á pínu skriftir...

Nú er ég búin að ljúka við rennismíðanámskeið sem er hluti af framleiðsluferliskúrsinum! Ekkert smá gaman, er búin að renna og fræsa og svo forrita smá í cnc, en það er svo tengt við einhverja tölvu sem rennir í plast. Svo nú er ég stoltur eigandi einhvers öxulsdóts og plastkubbapúsls.

Tók svo euróvisjónmaraþon á laugardaginn, horfði á undankeppnina (gó Silvía Nótt) og svo euróvisjón 2005 (var nottla úti þegar það var sýnt). Sofnaði því miður í miðju kafi svo að það þarf víst að klára þetta seinna.

Síðasta vika var hálfbrjáluð í skólanum og var ég að hugsa um að skrifa eina færslu einn daginn þegar ég var í mikilli kaffivímu til að ég myndi haldast vakandi í tölulegri greiningu. Það hefði samt örugglega orðið álíka steikt og færslan í Manuel Antonio fyrir förina til Arenal-eldfjallsins (það var happy hour svo ég var búin með tvær daiquiriar) svo ég hlífði ykkur. Kaffi hefur ekki voðalega æskileg áhrif á mig (var öll í kippum).

Nú er ég samt að sofna svo ég held ég neyðist til að kaupa mér kaffi...

 

P.S. Kíkið á www.jkrowling.com, er að spá í að byrja á öllum Harry Potter bókunum aftur... (Sætasti karakterinn úr kvikmynd fjögur er hér fyrir neðan, hinn bráðmyndarlegi Viktor Krum...)

Stanislav Ianevski as Viktor Krum in Warner Bros. Harry Potter and the Goblet of Fire


» 5 hafa sagt sína skoðun


Fröken Svensson...