|
|
26.09.2007 18:21:24 / elingunn
Fyrirsögnin á að vera gasalega sænsk: Tre kronor eins og hokkíliðið þeirra svíanna, en þar sem ég á engin krónutákn þá er þetta bara Tre stjärnor. Ennþá betra. Allt gott að frétta héðan! Skellti mér á mánudaginn í heimsókn til Heimis frænda sem er með íslandshestatamningarbúgarð (veit ei hvað formlega nafnið er á slíkum búgarði) í Vedum rétt fyrir utan Herrljunga. Mjög gaman að sjá, allt voða krúttlegt þarna, eins og húsið hans Emils í Kattholti eða eitthvað (rauð timburhús með hvítum körmum) Annars er það margt sem maður lærir af því að búa einsömul stúdína í útlandinu. Ég er farin að kunna ýmsar lausnir til að einfalda mér lífið: 1) Til að spara pening er gott að sanka að sér ókeypis prufutímum í líkamsræktarstöðvum. Stöðin sem ég mun að öllum líkindum halda áfram að stunda er búin að vera að deila út ókeypis prufutímakortum en það endist víst ekki nema út september. Ætli maður kaupi ekki bara kort eftir það (árskortið kostar bara 18þús hvort sem er) 2) Hjóla! Algjör snilld, er víst að borga sig fyrir mig núna að ég hjólaði mj. lítið á Íslandi þar sem hjólið mitt var alltaf inní bílskúr og er því bara nokkuð vel með farið...(kannski pínu langsótt samt, alltaf gott að sjá hið jákvæða í öllu, ekki satt?) Hjóla alltaf í og úr skólanum, svo það er alltaf einhver æfing á hverjum degi (þ.e. 6+6 mínútur, ekki verður maður kannski vöðvabúnt af því En svo er þetta bara svo gaman! 3) After Work. Ein besta uppgötvun mannkyns. Á föstudögum fara Gautaborgarbúar niðrí bæ, kaupa bjór á hálfvirði og fá ókeypis mat með. Tæknin við að fara á after work mun væntanlega verða fínpússuð næstu mánuðina þar sem það tekur tíma og þolinmæði að finna þann stað sem er með besta matinn. 4) Gott er að elda bara tvisvar í viku, og þá þrefalda uppskrift og frysta hana! 5) Horfa reglulega á Flight of the conchords á youtube (Alex á þakkir skildar fyrir að koma mér á bragðið!) til að fá sér eins og eina hlátursgusu inn á milli verkefna! Tékkið t.d. á þessu: http://youtube.com/watch?v=WGoi1MSGu64 ---Snilld...
»
09.09.2007 15:11:55 / elingunn
Jæja, kannski kominn tími á smá fréttir héðan úr Gautaborg. Nú er ég búin að vera hérna í tvær vikur og herbergið er orðið fínt. Er með 18,5 fermetra herbergi+bað sem er bara fínt, fyrir utan að sameiginlega eldhúsið er doldið vibbalegt. Aðallega vegna stelpunnar sem býr í herberginu við hliðina á mér, hún er búin að búa hér í fimm,sex ár og er búin að dreifa úr sér út um allt. Og er pínu subba. Kannski er hægt að finna út úr því... og skólinn byrjaði í síðustu viku. Námið er byggt upp þannig að ég tek tvo kúrsa í sjö vikur, svo próf og svo tvo kúrsa í viðbót í aðrar sjö vikur. Og þá koma jólin. Líst mjög vel á kúrsana mína, annar heitir Product Development Management og virkar gasalega spennó, og hinn heitir Advanced Computer Aided Design, og er örugglega svipaður tölvuvæddu hönnuninni heima, nema við teiknum með forritinu CATIA. Síðasta mánudag hittust allir mastersnemarnir í prógramminu mínu (Product Development) og meirihlutinn virðist vera Svíar, ca.30 stk, svo erum við 8 útlendingar held ég. Þeir settu strax í gang einhverja hópeflisæfingu sem fólst í því að setja saman þriggja manna hópa og áttu hóparnir að byggja bát sem komst yfir manngerða "á" og aftur til baka. Þessi hópefling tók slatta af tíma, verst að maður hópefldist bara með tveimur öðrum. Og klúðraði viðsnúningnum í "prófinu". Eeeen, anyways, fríar samlokur og gos á föstudeginum. Og frí hópheimsókn í Götheborg-skipið sem var byggt fyrir nokkrum árum eftir öðru skipi frá sautjándu öld sem sökk fyrir utan höfnina í Gautaborg eftir heimsreisu til Kína og til baka. Og frí gleði og söngur í hjarta. Annars kom mamma í heimsókn á miðvikudag og var þar til í gær, voða notó. Fórum út að borða, í IKEA, í bæjarferð und so weiter. Þurfti reyndar að vera í skólanum megnið af föstudeginum, en þá gat mamma hitt vinkonu sína á meðan. Svo í gærkveldi hitti ég einhverja aðra íslendinga á bar til að horfa á Svíþjóð-Danmörk. Þeir heimtuðu svo að Ísland-Spánn yrði settur á eftir þann leik og stóðu sig vel í öskrunum (aðallega til að réttlæta heimtinguna held ég, ekki var mikið um gloríur í þessum leik og skjávarpinn var bilaður svo maður sá bara einverjar klessur). En stuðið var grííííðarlegt, sérstaklega þegar íslendingar skoruðu undir ljúfum tónum David Hasselhoff syngjandi húgasjaga... já, þeir tóku hljóðið af leiknum og spiluðu krappí tónlist í staðinn. Núna á ég í rauninni að vera að lesa fjóra kafla í bókinni "Revolutionizing Product Development" en festist kannski pínu í Dexter. Er samt búin að elda gómsætt fyllt pasta og borða tvær gulrætur, einn tómat og hálfa gúrku með (verst hvað maður nennir aldrei að skera þetta niður) svo það ætti ekkert að vera því til fyrirstöðu að ég dembi mér lesturinn. Nema kannski maður festist í að skrifa færslur á netinu í staðinn. "Neyddist" reyndar til að borða matinn uppi hjá mér horfandi á House þar sem stelpan við hliðina á mér var að þurrka sængina sína á eldhúsborðinu. Vona að þið hafið það öll gott á Íslandi, skal reyna að leyfa ykkur að fylgjast með Gautaborgarlífinu!
»
19.04.2006 23:43:16 / elingunn
Var að skoða lonelyplanet.com og það voru fréttir um par frá
Austurríki sem hafði týnst í La Paz í Bólivíu og fundist látin í
byrjun apríl. Málið með þau var að gervileigubíll hafði tekið
þau, ásamt gervitúrista, upp í eftir að þau komu út úr rútu og
bíllinn var svo stoppaður og gervilöggur leituðu í bílnum. Hinn
"túristinn" var þá með "fíkniefni" og það var farið með þau öll á
gervilöggustöð þar sem kreditkortin þeirra voru tekin og
pin-númerin kreist út úr þeim. Þeim var svo haldið föngnum og
nokkrum dögum síðar voru þau drepin. Ég fékk mikið sjokk við
að lesa þetta þar sem það eru bara nokkrir mánuðir síðan maður var
þarna sjálfur, og m.a.s. lenti sjálfur í gervilöggu og gervitúrista
(sem var notaður til að gera gervilögguna trúverðugari). Munurinn
var bara að við vorum á fjölfarinni götu í Cochabamba (líka í
Bólivíu) en ekki fastar í einhverjum scam-leigubíl útí rassgati, og
við gátum labbað í burtu þegar okkur fannst þetta farið að verða
grunsamlegt (vorum því ekki rændar - skrifaði um þetta á
blogginu í fyrra, kannski muniði eftir því...?). Hefði samt
auðveldlega getað farið einhvern veginn svona hjá okkur, maður
finnur bara betur og betur hvað maður var rosalega
heppinn!
Svo sá ég líka að fimmtug kona frá Bretlandi hefði horfið í
Banos í Ecuador í janúar, sem er enn einn staðurinn sem maður
var á! Þegar ég var þarna úti vissi ég að það gat verið
eitthvað svona í gangi en maður pældi ekki mikið í að fólk gæti
verið myrt! Veit alveg að þetta er ekki algengt og
kemur aðeins fyrir brotabrot af túristunum sem fara til
Suður-Ameríku en það er bara svo yfirþyrmandi að heyra svona
sögur. Er enn hálfskjálfandi af sjokki...
»
06.04.2006 00:20:03 / elingunn
Eintóm gleði þessa dagana, er sveitt að reyna að velja kúrsana
mína fyrir næsta ár... Sjóarafrúin hún Emilíana er alveg að gera
sig á síðkvöldum til að vega upp á of miklum kaffiskömmtum (á
maður aldrei að læra hver mörkin eru í kaffiuppáhellingu...) En
svona til að kæta mig lít ég öðru hverju á dailydancer.com, mæli
sterklega með honum!!! Hér er einn góður dans:
http://videos.dailydancer.com/videos/2006/04/a_little_respect.wmv
Og aðalfundurinn á föstudaginn - gííífurleg stemmning! 
»
07.03.2006 09:13:41 / elingunn
Árshátíðin var á föstudaginn og mikil gleði þar á bæ!! Skreyttum
við hótelherbergið okkar í sönnum anda viknanna á undan, þ.e. við
hengdum upp matlab-kóðann okkar um stikun á hæðarlínum og splæni og
svona... Mojito-arnir mínir heppnuðust bara skítsæmilega (eftir
nokkra æfingu), þótt að ekki hafi öllum fundist þeir eins góðir...
Hins vegar var ekki eins gaman að þurfa að koma heim og þrífa allt
húsið hátt og lágt. En það reddaðist!
Smá tiltekt er í gangi þessa dagana á tenglalistanum mínum, er
ég að safna lista yfir skemmtilegasta fólkið (þeir sem halda að
þeir séu ekki á listanum mega minna á sig í kommentunum )
Listinn kemur samt ekki upp fyrr en að Nanna er búin að fá sér síðu
fyrir litla ófædda stráksa, ég vil bumbumyndir!
Annars er ég byrjuð að skipuleggja hvað ég ætla að kaupa fyrir
fyrstu sumarlaunin mín, ég ætla að flippa á amazon.co.uk... Bara
nokkrir mánuðir í viðbót... Já og fyrir áhugasama þá er ég byrjuð
aftur á Harry Potter bókunum og er eins og stendur í bók 4.

Einn af DVD-diskunum sem ég ætla að kaupa mér á amazon
þegar ég á pening... algjör snilldarmynd!
»
07.02.2006 08:43:47 / elingunn
Jæjajá, ætli það sé ekki kominn tími á pínu
skriftir...
Nú
er ég búin að ljúka við rennismíðanámskeið sem er hluti af
framleiðsluferliskúrsinum! Ekkert smá gaman, er búin að renna og
fræsa og svo forrita smá í cnc, en það er svo tengt við einhverja
tölvu sem rennir í plast. Svo nú er ég stoltur eigandi einhvers
öxulsdóts og plastkubbapúsls.
Tók svo euróvisjónmaraþon á laugardaginn, horfði á
undankeppnina (gó Silvía Nótt) og svo euróvisjón 2005 (var nottla
úti þegar það var sýnt). Sofnaði því miður í miðju kafi svo að það
þarf víst að klára þetta seinna.
Síðasta vika var hálfbrjáluð í skólanum og var ég að hugsa um
að skrifa eina færslu einn daginn þegar ég var í mikilli kaffivímu
til að ég myndi haldast vakandi í tölulegri greiningu. Það hefði
samt örugglega orðið álíka steikt og færslan í Manuel Antonio fyrir
förina til Arenal-eldfjallsins (það var happy hour svo ég var búin
með tvær daiquiriar) svo ég hlífði ykkur. Kaffi hefur ekki voðalega
æskileg áhrif á mig (var öll í kippum).
Nú
er ég samt að sofna svo ég held ég neyðist til að kaupa mér
kaffi...
P.S. Kíkið á www.jkrowling.com,
er að spá í að byrja á öllum Harry Potter bókunum aftur...
(Sætasti karakterinn úr kvikmynd fjögur er hér fyrir neðan,
hinn bráðmyndarlegi Viktor Krum...)

»
09.01.2006 10:21:56 / elingunn
Fyrsti kennslutími sem ég fer í í eitt ár
mun hefjast hér á eftir. Mun það vera vélhlutafræði og ætla ég
að opna svosum eina kampavínsflösku í tilefni þessa merka
áfanga. Blóm afþökkuð
Mjög skrítið að vera að fara að læra aftur
eftir síðasta ár, ekki frá því þó að þetta verði bara allt í
lagi... Líkamsræktin og hollustuátakið er líka byrjað eftir jólin
og mun ég stunda jóga þess á milli. Sjáum til hvort að mér takist
að halda mér við þetta ofvirkniskast mitt...
Annars
finnst mér líf mitt eitthvað frekar óspennandi þessa dagana, stenst
kannski ekki alveg samanburðinn við síðasta ár, svo að þið afsakið
óspennandi færslu. Kannski kemur einhver betri færsla bráðum þegar
líf mitt verður aftur ógissla spennó. Býst fastlega við að það muni
gerast mjög bráðlega
»
23.12.2005 12:24:18 / elingunn
Er loksins að komast í jólaskap!!! Jólatiltektin næstum búin og
jólahreingerningin að baki, jólainnkaupum verður sinnt í dag...
Verkfræðidjammið heppnaðist bara mjög vel, ekkert smá gaman að sjá
allt fólkið aftur!  Úti er snjókoma (enda er ég jú uppí sveit
eins og miðbæjarrotturnar vilja meina) og jólalögin óma úr
útvarpinu. Vantar bara hangikjötslyktina til að fullkomna
stemninguna! Það er bara nokkuð gott að vera komin heim...  Vona
að þið njótið öll jólanna!
»
19.12.2005 23:05:31 / elingunn
Horfði á the Skeleton Key með Agnesi systur í gærkvöldi. Já eða
Kate Hudson er í aðalhlutverki, ekki Agnes systir. Mjög spes endir
á Hollywood-mynd (þeir sem hafa ekki séð hana en ætla sér að sjá
hana ættu e.t.v. að hætta að lesa). Myndin er sumsé um húdú-fólk
(já húdu, ekki vúdú) sem var uppi á síðustu öld og ákváðu að lifa
að eilífu þannig að þegar þau nenna ekki að vera í líkamanum sínum
lengur því hann er orðinn gamall og þreyttur þá skipta þau
bara um líkama við ungt fólk.
Og hér kemur pælingin: Hvernig veit maður ef fólk í kringum
mann er ekki bara eitthvað húdú-fólk sem er búið að taka yfir
líkama vina/fjölskyldu manns? Ef t.d. einhver er að haga sér
furðulega þá gæti það nottla bara verið önnur manneskja búin að
koma sér fyrir í líkamanum á öðrum. Sumir myndu til dæmis segja að
ég væri að setja fram furðulegar kenningar núna og hvernig
vitiði þá að þetta er ég en ekki einhver gömul beitingakona búin
að lifa áfram í aldir með því að skipta um líkama (kannski
væri þá ekki glóra í því samt að vera að koma upp um sig á
netinu...) Bara smá pælingar (er syfjuð, þið fyrirgefið)
»
09.12.2005 23:48:11 / elingunn
Yo! Er að mygla í örtölvu- og mælitækninni... klára þó á
mánudaginn! Ágætis upphitun fyrir vorönnina býst ég
við.
[Intro]
Just gimme di G’s an we be clubbin’ yo (clubbin’ yo)
It a mek we please an we be tuggin’ yo(tuggin’ yo)
sippin in deh sea an we bubblin’ yo (bubblin’ yo)
Set ya mind at ease we gotta take it slow
So when yuh see di S.P. floatin’, don’t provoke him
Cau di weed weh we smokin need fi soakin’
Best ting fi di recreation, and di best hygrade a Jamaican
It fi a weed we supportin’ not promotin’
Lau di crack and di cokin hear me shouting
Herb a di healin’ of di nation
Legalize it right now we wan blaze one
[chorus]
Everyday, we be burnin not concernin’ what nobody wanna say
We be earnin’ dollars turning cau we mind deh pon we pay
More than gold and oil and diamonds girls we need em everyday
recognise it,we pimpin’ as we ridin’
Hann Sean
Paul vinur minn komst jú svo vel að orði. Dýrka nýja diskinn hans,
besta útgáfa hip-hopsins er einmitt vel reggaeskotin! Einhverjir
fleiri komnir í djammstuð? Eru ekki fleiri en ég og Lilja sem klára
í næstu viku???
»
29.11.2005 10:06:38 / elingunn
Ég stend á gati! Það er búið að gera við Suðurgötuna. Og
Miklabrautin er orðin að slaufu. Og það er komin glerveggur in í
VR2, manni líður eins og í petrískál. Og maður þekkir engan þarna!
Er komið svona mikið af nýju fólki eða hvað? Og ég sem gerði ráð
fyrir að tíminn hefði staðið í stað á meðan ég var í útlöndum. Til
að toppa allt saman þá ætlaði ég að vera ógissla kúl og vera með
nýja i-podinn minn að læra, en þá varð hann batteríslaus. Er að spá
í að fara heim að læra, lífið er allt of stressandi útí
samfélaginu...
»
22.11.2005 19:19:29 / elingunn
Blessuð og sæl! Loksins er maður farinn að geta skrifað íslenska
stafi... (nennti aldrei að stilla það hér áður fyrr útí heimi)
Dótið mitt er ennþá í ferðatöskunum (hálf komið uppúr samt), en
hárið mitt er orðið svaka flott eftir langþráða klippingu. Hef
nebbla ekki farið í klippingu síðan hjá furðulegum rakara í
Bólivíu... Aðlögunin gengur bara nokkuð vel samt, ætli maður
neyðist samt ekki bráðlega til að fara út í samfélagið... og
kannski láta sjá sig í VR2...
»
15.11.2005 16:24:13 / elingunn
Thá er nú bara flugid til Boston á morgun og sídasti dagurinn í
Alajuela ad hefjast hjá mér (ég er sex tímum á eftir ykkur sjáidi
til). Er búin ad hitta tico-fjolskylduna mína aftur og var thad
rosa gaman, thau eru komin í nýtt og staerra hús und alles!
Annars veit ég ekki alveg hvad ég get sagt. Pínu melankólísk
faersla kannski thví thetta er svona smá sorgarmóment (sídasta
faerslan í útlondum...) en svo er madur gladur líka ad vera ad koma
heim ad hitta alla. Trúi thví varla ad thad séu komnir sjo og
hálfur mánudur sídan ég kvaddi Ísland í snjói og kulda... Og nú kem
ég aftur í kulda (er snjór?). Aetli madur sé ekki búinn ad breytast
slatta. Ef thid thekkid mig ekki aftur thá verd ég gerpid í
kraftgalla med rússahúfu.
»
12.11.2005 01:32:02 / elingunn
Eg er ordin brunni. Og eg er lika ordin surfdrottning. Og a
morgun forum vid til eldfjallsins Arenal. Vona bara ad eg hitti
ekki Arsenal thar. Nema kannski Thierry Henry og Fredrik Ljungberg.
Thvi their eru svo saetir.
»
07.11.2005 19:46:47 / elingunn
Vid erum komnar til Quito, skemmtilegustu hofudborgarinnar
hingad til í S-Ameríku (th.e. sem ég hef komid til)! Mjog falleg
borg, gamli baerinn er rosa flottur! Uppá hól vakir yfir baenum
"the Virgin of Quito", einhver kelling med vaengi og geislabaug,
fettandi fingur og haldandi á einhverri kedju... (?)
Í gaer tókum
vid straetó ad midbaug. Thad er til baer sem heitir Midja heimsins
og er midja heimsins inní honum! Búid ad koma fyrir svaka
"monumenti" og mála línu thar sem ad midbaugur liggur... Vid Gunna
fórum allan hringinn og tókum myndir af okkur allsstadar. Thad eru
til myndir af okkur horfandi til nordurs, vesturs, sudurs og
austurs (meira ad segja skimandi til nord-nordausturs - Íslands!)
og labbandi á midju heimsins. Adalsportid var ad hoppa á milli
nordur- og sudurhvels og get ég sagt ad thad var mikil upplifun!
(nordur - sudur - nordur - sudur - nordur... well you get the
point)
Eigum flug
til Costa Rica á morgun og skellum okkur á strond (hofum ekki farid
á thannig sídan í Panama, ergo hin fallega bóndabrúnka). Mun
reyna ad njóta vel hinna sídustu skuldbindingarlausu daga á
faraldsfaeti... svo verdur madur bara kominn heim ad blandast inn í
hinn einsleita hóp námsmanna í VR2 (neeeei djók... thid erud ekkert
svo einsleit). Meira sídar...
»
Síður: 1 2 3 4
|
|